Þau undur og stórmerki gerðust hjá Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu að viðmiðun frá síðasta fiskveiðiári fyrir línuívilnun í ýsu var skert um 41% – 289 tonn og í steinbít um 74 tonn. Á síðasta fiskveiðiári voru ætluð 701 tonn til línuívilnunar í ýsu, aðeins átta tonn nýttust ekki. Sama var uppi á teningnum í steinbít nema þar var ekkert skilið eftir af 251 tonna viðmiðun.
Fastlega var því búist við að tekið yrði tillit til þessa þegar viðmiðun var ákveðin í reglugerð fyrir yfirstandandi fiskveiðiár. Það var hins vegar ekki gert og því nauðsynlegt að ráðherra láti til sín taka og tryggi línuívilnun í öllum tegundum til loka fiskveiðiársins.
Árinu er skipt í fjögur tímabil.
I. September – nóvember.II. Desember – febrúar.III. Mars – maí.IV. Júní – ágúst
Taflan sýnir línuívilnun í ýsu fiskveiðiárin 2020/2021 og 2021/2022.
Tímabil |
2020/2021 |
2021/2022 |
||
Viðmiðun |
Afli |
Viðmiðun |
Afli* |
|
I. |
255 tonn |
386 tonn |
150 tonn |
143 tonn |
II. |
224 tonn |
171 tonn |
132 tonn |
0 tonn |
III. |
130 tonn |
81 tonn |
76 tonn |
0 tonn |
IV. |
92 tonn |
55 tonn |
54 tonn |
0 tonn |
Samtals |
701 tonn |
693 tonn |
412 tonn |
143 tonn |
* staðan 12. nóvember 2021.
Reglugerð um línuívilnun 2020/2021 var breytt alls sjö sinnum. Í nóvember 2020 var viðmiðun í þorski lækkuð úr 1.200 tonnum í 1.050 tonn. LS mótmælti ákvörðuninni og hafði árangur sem erfiði. Viðmiðun var hækkuð í þrepum í 1.386 tonn og tímabilum breytt þannig að ekki kæmi til stöðvunar, að undanskyldu 20. maí til 3. júní.
Í bréfum LS til ráðherra var bent á hversu mjög línuívilnun hefði verið skert og er taflan hér óræk sönnun þess.
Viðmið |
2018/2019 |
2019/2020 |
2020/2021 |
2021/2022 |
Þorskur |
3.000 tonn |
2.000 tonn |
1.386 tonn |
1.400 tonn |
Ýsa |
1.000 tonn |
849 tonn |
701 tonn |
412 tonn |
Steinb. |
700 tonn |
501 tonn |
251 tonn |
177 tonn |
Á aðalfundi LS hefur verið mikil og góð samstaða að efla línuívilnun. Hún gildi fyrir alla dagróðrabáta minni en 30 búttótonn sem eru styttri en 12 metrar. Ívilnun verði á bilinu 10 – 30%. Jafnframt ályktaði fundurinn að framvegis myndi línuívilnun nefnd umhverfisívilnun.