Umsókn um grásleppuleyfi

Laugardaginn 26. mars næstkomandi verður heimilt að hefja grásleppuveiðar á eftirtöldum svæðum:
D – Húnaflói, frá Horni að Skagatá
E – Norðurland – frá Skagatá að Fonti á Langanesi
F –  Austurland – frá Fonti að Hvítingum
G –  Suðurland, frá Hvítingum að Garðskagavita
Þar sem upphafsdag ber upp á laugardag fyrir páska er sérstök athygli vakin á að aðilar sem ætla að hefja vertíðina einhvern af eftirtöldum dögum:  
Laugardaginn 26. mars
Páskadag 27. mars
Annan páskadag 28. mars
Þriðjudaginn 29. mars
verða að hafa gengið frá umsókn fyrir kl 15:00 nk. miðvikudag 23. mars og greiða fyrir leyfið fyrir kl 21:00 þann sama dag.