Útflutningsverðmæti grásleppu 2,8 milljarðar

Grásleppan gaf vel af sér á síðasta ári.  Útflutningsverðmæti þeirra þriggja afurða sem fluttar eru á erlenda markaði nam um 2,8 milljörðum.  Grásleppukavíarinn gaf mestu verðmætin rúman 1,3 milljarða, söltuð grásleppuhrogn um 850 milljónir og frosin grásleppa rúmar 600 milljónir.
Þó frosin grásleppa hafi ekki skapað verðmæti fyrr en 2013 er árið í fyrra þó ekki hæst í sögunni.  Þar trónir árið 2010 þegar söltuð hrogn og kavíar skiluðu 3,8 milljörðum í útflutningsverðmæti á verðlagi þess árs, enda veiði þá helmingi meiri en í fyrra.   
200210Unknown.jpg