Útflutningur margfaldast til Bandaríkjanna

Þorskur
Gríðarleg aukning er í útflutningi á ferskum þorski til Bandaríkjanna.  Á fyrri helmingi ársins nam sala þangað 966 tonnum á móti 368 tonnum á sama tímabili í fyrra.   Magnið nú jafngildir 9% af heildarútflutningnum.   
Samfara 35% aukningu á heildarmagni jukust verðmætin um 1,5 milljarð og fóru í 12,4 milljarða.  Meðalverðið nú er 15% lægra en í fyrra.
Kaupendur koma frá 19 löndum sem er 4 fleiri en selt var til í fyrra.  Ný lönd sem hafa bæst við á þessu ári eru Úkraína, Ítalía, Íran og Brasilía.
Röð þeirra þriggja þjóða sem mest er flutt til er óbreytt frá því í fyrra.  Frakkar bera höfuð og herðar yfir aðrar þjóðir með 43% af magninu, Bretar eru næstir þeim og Belgar þriðju í röðinni.
Ýsa
Líkt og í þorskinum eru viðskipti Bandaríkjanna afar áhugaverð.  Þangað voru flutt rúm þúsund tonn á fyrstu sex mánuðum ársins sem er rúmlega 40% aukning milli ára.  
Á sama tímabili á síðasta ári keyptu Bretar langmest af ferskri ýsu frá okkur, en nú eru Bandaríkin komnir í forystuna og er hlutdeild þeirra í ár 44%.
Heildarútflutningur á ferskri ýsu hefur dregist saman um 9% milli ára, en verðið hækkað um 4%.   Útflutningsverðmæti á þessu ári var komið í 2,9 milljarða í lok júní.
Tölur eru staðreyndar frá Hagstofu Íslands