Fiskistofa hefur sent frá sér tilkynningu er varðar fyrirkomulag við útgáfu grásleppuleyfa.
„Sé umsókn fullnægjandi og berist hún fyrir kl. 15:30 á virkjum degi verður til greiðsluseðill í heimabanka umsækjanda skömmu seinna. Ef greitt er fyrir kl. 21 þann dag verður útgefið veiðileyfi tiltækt frá miðnætti á síðu umsækjandans í UGGA og hann getur þá hafið veiðar daginn eftir greiðslu fyrir leyfið.
Berist greiðsla seinna en kl. 21 seinkar útgáfu leyfis um sólarhring.
Greiða þarf fyrir kl. 21 á föstudegi eigi leyfi að verða orðið virkt á mánudegi.
Hliðstæð regla gildir um almenna frídaga. Ofangreindar tímasetningar ráðast af því hvernig bankafærslur eiga sér stað hjá Reiknistofu bankanna.
Grásleppuveiðar sem hefjast um páskana
Fiskistofa vekur sérstaklega athygli á að þeir grásleppuveiðimenn sem hyggjast virkja leyfi sín og hefja veiðar um páskana þurfa að hafa sótt um grásleppuleyfi fyrir kl. 15:30 miðvikudaginn fyrir skírdag, þ.e. 28. mars, og hafa greitt fyrir leyfið fyrir kl. 21 þann dag í heimabanka eða bankaútibúi. Þetta á við um þá sem hyggjast hefja veiðar á tímabilinu 29. mars til og með 3. apríl.
Fyrsti veiðidagur á grásleppuveiðisvæðum A, B og C er páskadagur, 1. apríl. Þeir sem vilja hefja veiðar á þeim svæðum frá fyrsta degi þurfa því að ganga frá umsókn og greiða leyfið ekki seinnna en á miðvikudaginn 28. mars. Einnig bendum við á að til þess að hafa leyfi til grásleppuveiða á þriðjudeginum eftir páska, þ.e. 3. apríl, þarf í síðasta lagi að gagna frá umsókn og greiða hana miðvikudaginn 28. mars.