Vegna strandveiða á svæði A

Eftirfarandi er orðsending frá Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu:
„Vegna tæknilegra mistaka sem snúa að birtingu auglýsingar í Stjórnartíðindum, um stöðvun strandveiða á svæði A, frá Eyja- og Miklholtshreppi að Súðavík, birtist  auglýsing um stöðvun veiða þann 10. júlí ekki með réttum hætti. Því eru strandveiðar á svæði A heimilar í dag 10. júlí. 
Ráðuneytið hefur vegna þessara tæknilegu mistaka birt nýja auglýsingu um stöðvun strandveiða á svæði A sem gildir frá og með 11. júlí. 
Til að koma til móts við þá aðila sem töldu að strandveiðar væru óheimilar í dag og réru þar af leiðandi ekki, hefur verið ákveðið að þeir fái viðbótardag til strandveiða í ágústmánuði. Skilyrði þess að fá þennan viðbótardag er að viðkomandi hafi verið á strandveiðum í júlí , en eins og áður sagði, ekki róið í dag. 
Þeim sem héldu til veiða í dag er heimilt að ljúka 14 tíma veiðiferð.