Veiðar bannaðar á hrygningarsvæði steinbíts

Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur ákveðið með reglugerð að banna veiðar á hrygningarsvæði steinbíts á Látragrunni.  Lokunarsvæðið er við hlið friðunarsvæðis sbr. reglugerð nr. 754/2010.  Veiðibannið tekur gildi á morgun 15. september og gildir til og með 15. nóvember nk.  
Í fréttatilkynningu sem sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið hefur sent frá sér mun Hafrannsóknastofnunin rannsaka svæðið og meta þéttleika hrognaklasa steinbíts með neðansjávarmyndavél.   Rannsóknir sýna að hrygning steinbíts hefst í lok september en eggjaklasarnir eru botnlægir og því berskjaldaðir fyrir botnvörpuveiðum.
Myndin sýnir lokunarsvæðin
Screen shot 2011-09-14 at 16.37.30.png