Í kvöldfréttum RÚV var rædd við Axel Helgason formann LS um veiðigjöld. Þar sagði hann smábátaeigendur vera að borga veiðigjöld sem næmi sexföldum hagnaði viðmiðunarársins.
Samkvæmt tölum Hagstofunnar til Veiðigjaldsnefndar var útgerð báta minni en 10 brl. rekin með 71 milljóna hagnaði árið 2015. Miðað við veiðiheimildir þessara báta á yfirstandandi fiskveiðiári jafngilda veiðigjöld þeirra 430 milljónum.