Verð á mörkuðum gaf eftir

Í dag voru seld á fiskmörkuðunum 274 tonn af þorski veiddum á handfæri.  Verðið gaf nokkuð eftir frá í gær lækkaði um 26,6%.  Meðalverð endaði í 259 kr/kg og því nemur verðmunur í dag og í gær 94 kr/kg.
Þar með hefur allur afli af strandveiðum fyrstu tvo daga ágústmánaðar verið seldur. 
Gegnum fiskmarkaði voru seld 486 tonn sem skilaði alls 145 milljónum.  Meðalverð þessa tvo daga 299 kr/kg, sem flestir strandveiðimenn sem rætt var við telja viðunandi. 
Ítrekað skal reglugerðarákvæði um strandveiðar á svæði A að þeir bátar sem stunduðu veiðar í júlí sl., en héldu ekki til veiða þriðjudaginn 10. júlí er heimilt að stunda veiðar nk. þriðjudag, 7. ágúst.