Fyrsta tímabili strandveiða 2017 er lokið.
471 bátur var á veiðum í nýliðnum maí móti 547 í fyrra. Það er svipaður fjöldi og í sama mánuði 2015, en langtum færri en á metárinu 2012 þegar 586 bátar voru á strandveiðum.
Fækkunin á sér nokkrar skýringar. Sú sem vegur langþyngst er það sem fæst fyrir þorskinn. Verð nú er það lægsta í krónum talið frá upphafi strandveiða. Það dregur úr arðsemi veiðanna og um leið úr áhuga og getu til að stunda þær.
Meðalverð á fiskmörkuðum fyrir hvert kíló af óslægðum þorski sem veiddur var handfæri í nýliðnum maí var 195 krónur en 248 í fyrra.
Grafið hér sýnir verðþróunina í maí frá 2010 og segir allt sem segja þarf um þá erfiðleika sem nú herja á undirstöðuatvinnuveg þjóðarinnar – sjávarútveginn. Mismunur á verði við upphaf strandveiða er 116 krónur.
Það hafði einnig áhrif á fjölda báta að tímabil grásleppuveiða var lengt og því skila þeir bátar sér
nú síðar til strandveiða.
Aflabrögð voru nokkuð góð miðað við risjótta tíð. Meðaltal í róðri nærri metárinu í fyrra, 596 kg á móti 601 kg í fyrra.