Verð á þorski mjakast upp á við

Það sem af er maí, 1. – 28., er meðalverð á óslægðum þorski seldum á fiskmörkuðum 9% hærra en það var á sama tímabili í fyrra.  Síðustu 7 daga hefur þróun verðs verið með miklum ágætum eins og sjá má á þessu skjáskoti af síðu Reiknistofu fiskmarkaða.
Screen Shot 2018-05-29 at 11.20.12.png
Sjómenn fagna þessari þróun og vona að hún verði viðvarandi.
Hækkunin er í nokkuð í takt við þróun gjaldmiðla í okkar helstu viðskiptalöndum.  Mesta styrkingin er á evrunni, sem skilaði 113 krónum að meðaltali í maí í fyrra en nú fást 122 krónur fyrir hverja evru.  
Taflan sýnir meðaltalskaupgengi:

1.5. – 28.5:

2018

2017

BREYTING

EUR

122,46

113,81

7,07%

GBP

139,55

133,63

4,23%

USD

103,40

103,29

0,11%