Við áramót

 
 
 
Næstkomandi þriðjudag 1. september gengur í garð nýtt kvótaár.  Af því tilefni ritaði Georg Eiður Arnarson trillukarl í Vestmannaeyjum grein á blogsíðu sína.
 
 
 
Grein Georgs er afar áhugaverð þar sem hann kemur inn á fjölmörg málefni sem eru smábátaeigendum hugleikin.  Má þar nefna ákveðnar skoðanir hans á tillögum Hafró um heildarafla, ástandi löngustofnsins, hringlanda í ýsunni, strandveiðum, veiðum stærri línubáta ofl.