Viðbótarúthlutun í makríl

Makrílveiðar smábáta eru hafnar.  Veiðisvæðið er útaf Keflavíkurhöfn.  Rúmur tugur báta er þar að veiðum og er þétt setinn bekkurinn.
Makríllinn sem veiðist er með besta móti – stór og pattaralegur – mikið af honum stærri en 600 grömm.
Fiskistofa hefur tilkynnt fyrstu úthutun úr 2.000 tonna pottinum.  Hámarksúthlutun hverju sinni eru 35 tonn.  Umsóknir 8 aðila alls 280 tonn voru samþykktar.  
Sjá nánar: