Vilja leyfa netaveiðar krókaaflamarksbáta

Aðalfundur Snæfells var haldinn í Grundarfirði 16. september sl.   Að venju komu menn vel undirbúnir til fundarins, fullir gleði yfir að hittast og ræða málin.  
Í skýrslu formanns, Örvars Marteinssonar, kom meðal annars fram að meðal félagsmanna ríkti almenn ánægja með nýtt strandveiðikerfi, stórt skref stigið í átt að hagkvæmni.  Örvar sagði rekstrarumhverfi við línuveiðar orðið slæmt.  Einn möguleikinn á að breyta því væri að gefa krókabátum heimild til að veiða í net.

IMG_8670.png

Í lok ræðunnar vék hann að grásleppuveiðum og sagði brýnt að LS hefði hagkvæmni veiða að leiðarljósi við breytingar sem nú væru í umræðunni.
Stjórn Snæfells var endurkjörin með lófaklappi.  Hana skipa eftirtaldir:

Örvar Már Marteinsson formaður, Ólafsvík

Ásmundur Guðmundsson gjaldkeri, Stykkishólmi
Runólfur Kristjánsson ritari, Grundarfirði
Bergvin Snævar Guðmundsson meðstjórnandi, Grundarfirði
Klemens Sigurðsson meðstjórnandi, Arnarstapa
Fjölmargar tillögur voru bornar fram og þær ræddar í þaula áður en gengið var til atkvæða. 
Samþykkt að krókabátar fái að veiða í þorskanet.
Mesta umræðu fékk tillagan um að leyfðar verði netaveiðar á krókaaflamarksbátum.  
Svara verður þeirri spurningu hvað sé best fyrir alla.  Við yrðum að huga að ímyndinni, netin skora ekki hátt á þeim vettvangi.  Nauðsynlegt að setja ákveðnar reglur, netaveiðar leyfðar í ákveðinn tíma á árinu og reglur um umgengni t.d. að dregið sé daglega.
Tillagan var samþykkt með 14 atkvæðum gegn 6.
Óbreytt kerfi í strandveiðum.

Aðalfundur Snæfells fagnar þeim breytingum sem gerðar voru á strandveiðikerfinu og vill að það verði fest í sessi.  Ennfremur að við endurskoðunina verði unnið að umbótum á kerfinu sem taka tillit til fiskgengdar.
Sjá nánar tillögur Snæfells til 34. aðalfundar LS
Í lok fundar þakkaði formaður fyrir góðan fund í fjölmennasta svæðisfélagi LS og sleit fundi.
logo snæfell copy 2.jpg