Vilja samfelldar strandveiðar í ágúst

Stjórn Landssambands smábátaeigenda kom saman til fundar í Reykjavík þann 28. júlí.  Fjölmargt var á dagskrá fundarins.   Sérstaklega var ályktað um strandveiðar, línuívilnun, byggðakvóta, veiðigjald og fiskverð.  
Ráðherra hækki aflaviðmiðun í ágúst
Eftirfarandi ályktun um strandveiðar 2017 er beint til Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Strandveiðar 2017 hafa ekki uppfyllt þær væntingar sem þátttakendur gerðu til þeirra.  Þrátt fyrir að 11% færri stundi veiðarnar í ár en í fyrra, fækkun um 72 báta, og því meira sem kemur í hlut hvers og eins er aflaverðmæti nú fjórðungi lægra en í fyrra.  Hrun fiskverðs og ónægar veiðiheimildir eru helstu orsakavaldarnir.  
 

Til að koma til móts við erfiðleika þessu samfara fer stjórn LS þess á leit að sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hækki aflaviðmiðun til strandveiða í ágúst þannig að ekki komi til stöðvunar veiða.  

Stjórnin bendir á að vegna vinnustöðvunar á fiskveiðiárinu verður þorskafli nokkuð undir því sem aflaregla gerir ráð fyrir að veitt verði – 244 þúsund tonn.  Samkvæmt tölum Fiskistofu var þorskafli á fiskveiðiárinu þann 21. júlí – 212 þúsund tonn, sem er um 17 þúsund tonnum minna en á sama tíma á fiskveiðiárinu 2015/2016.

Með því að fallast á beiðni LS fást mikilvægar upplýsingar um veiðar á svæði A.  Hægt verður að meta sóknina m.t.t. hugmynda sem fram komu í vinnuhópi sem yfirfór strandveiðikerfið fyrr á þessu ári.   
Á næstu dögum verður nánar greint frá ályktunum sem samþykktar voru. 
20170712_020147-EFFECTS (1).jpg
Á leið á miðin frá Grenivík