Villa við gerð krafna vegna umframafla

Fiskistofa hefur tilkynnt að villa hafi komið upp hjá Fjársýslunni við stofnun krafna í gær vegna umframafla á strandveiðum. Mynduðust því fjórar kröfur í heimabanka útgerða. 
Fiskistofa biður aðila vinsamlega að sýna biðlund og greiða ekki fyrr en einungis ein krafa er í heimabanka viðkomandi. 
„Fiskistofa biðst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að hafa skapað og mun tilkynna þegar búið er að leiðrétta kröfurnar.