Sjávarútvegsvefur Morgunblaðsins birtir í dag viðtal við Axel Helgason formann LS. Í viðtalinu greinir Axel frá fundi sem LS átti með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Axel „segist vongóður um að nýr sjávarútvegsráðherra sjái rök smábátaeigenda fyrir kerfisbreytingum á strandveiðum og makrílveiðum.
LS vill sjá breytingar á strandveiðikerfinu og að makrílreglugerðin verði felld úr gildi.