Fontur harmar ákvörðun sjávarútvegsráðherra að skerða afla til strandveiða á komandi sumri, en treystir því að hún verði endurskoðuð og 48 dagar tryggðir til veiðanna.
Ákvörðun ráðherra sýnir að knýjandi er að breyta fyrirkomulagi á ráðstöfun aflaheimilda úr 5,3% pottinum. Strandveiðar eiga ekki að vera háðar viðskiptum uppsjávarútgerða með veiðiheimildir.
Óumdeilt er að útgerð smábáta hefur spornað gegn samþjöppun og komið í veg fyrir að fjölbreyttur sjávarútvegur legðist af í hinum dreifðu byggðum. Strandveiðar yfir sumarið hafa tryggt útgerð hundruð smábáta sem landað hafa afla á tuga útgerðarstaða um land allt. Þannig hafa hafnarmannvirki fengið endurnýjað hlutverk ásamt þjónustuaðilum. Síðast en ekki síst hafa strandveiðarnar gefið nýjum aðilum tækifæri á að hefja útgerð.
Veiðar smábáta á strandveiðum eru njörvaðar niður með alls konar takmörkunum. Það sem stjórnvöld ná þó ekki til er náttúran sjálf; veður og fiskgengd á grunnslóð. Að vitna í ofanálag til vísindalegrar ráðgjafar Hafrannsóknastofnunar er til að æra óstöðugan. Veiðar smábáta með handfærum þar sem aflinn sveiflast til og frá um 1% af leyfilegum heildarafla á enga samleið með vísindalegri nálgun.
Þórshöfn 18. janúar 2022
fh. stjórnar Fonts
Halldór Rúnar Stefánsson
formaður