Ýsa á sama verði og þorskur

Þegar rýnt var í útflutningsverðmæti fyrsta ársfjórðungs kom ýmislegt forvitnilegt í ljós.  Það vekur t.d. mikla athygli að útflutningsverð á ferskri ýsu er komið í þorskverð.  Á sama tímabili í fyrra var þorskurinn seldur á 18% hærra verði en fékkst fyrir ýsuna.
Í ár hefur ýsan hækkað í verði á sama tíma og þorskverð hefur gefið eftir.  Viðsnúningur hefur orðið í kaupendahópnum á ýsu.  Á fyrstu þrem mánuðum ársins höfðu 42% af ýsunni verið seld til Bandaríkjanna á móti 26% á sama tíma í fyrra.   Aukningin kom niður á Bretum sem fengu aðeins um þriðjung af ýsunni en voru með um helming alls magnsins á fyrsta ársfjórðungi í fyrra.
   
Upplýsingar unnar upp úr tölum frá Hagstofunni