Ferskar afurðir unnar úr ýsu voru seldar til alls 14 landa á síðasta ári. Þrátt fyrir 17% magnsamdrátt frá 2011 til Bretlands keyptu þeir mest af okkur rúm 1.800 tonn.
Bandaríkjamarkaður og sá franski tóku verulega við sér milli ára. Magnaukning til Bandaríkjanna var 27% og skilaði hann einnig verðhækkun, en með 53% aukningu á þann franska fylgdi veruleg verðlækkun.
Verð hækkaði lítillega milli ára, að meðaltali um 4% í krónum talið. Heildarútflutningsverðmæti ýsunnar voru rúmir 5 milljarðar sem fengust fyrir 4.200 tonn.
Unnið upp úr upplýsingum frá Hagstofu Íslands