Ýsan slær þorskinum við

Það bar til tíðinda á fiskmörkuðum í dag að ýsa seldist á hærra verði en þorskur.  Seld voru 17,7 tonn af óslægðri ýsu og var meðalverðið 349 kr / kg.  Af þorski voru seld 37,7 tonn og fengu kaupendur hann á 340 kr hvert kíló.
Eins og áður hefur komið fram eru markaðir fyrir ýsu afar góðir sem sýnir sig vel í því góða verði sem greitt er fyrir hana um þessar mundir.

ýsa.png  349 kr / kg
þorskur.png  340 kr / kg