Ýsugengd ekki bundin við haustið

Í Brimfaxa, félagsblaði LS sem út kom í desember sl., var rætt við Höskuld Björnsson verkfræðing á veiðiráðgjafasviði Hafrannsóknastofnunar.  Umtalsefnið var ýsan, hvaða sýn hann hefði á hina miklu veiði á henni undanfarin ár.  Höskuldur sagði að samkvæmt gögnum Hafrannsóknastofnunar hafi alltaf veiðist mikið af ýsu á grunnslóð á haustin og því kæmi það í raun ekki á óvart að mikið af henni veiðist nú á grunnslóð.
Eins og fram hefur komið hér á síðunni eru krókaaflamarksbátar komnir í hreinustu vandræði vegna mikillar ýsu á veiðislóð þeirra.  Það er sammerkt þeim að allir reyna að forðast ýsu við þorskveiðar.  Þó það sé gert eiga margir í mesta basli með að ná hlutfalli ýsunnar niður fyrir 50%.
Viðmælendur LS segja ýsu nú veiðast allt árið og það sem af er þessu fiskveiðiári hafi ívið meira verið af henni en í fyrra.  „Það væru skrýtin vísindi að þegar vísindamenn segja okkur sjóinn fullan af þorski en lítið af ýsu, þá sé þetta öfugt farið á miðunum, eins og einn félagsmaður orðaði það.
LS mun eiga fund með sjávarútvegsráðherra á morgun miðvikudag þar sem honum verður gerð grein fyrir erfiðleikum í útgerð krókaaflamarksbáta við þorskveiðar vegna skorts á ýsukvota.