Aðalfundur Árborgar

Boðað hefur verið til aðalfundar Árborgar – félag smábátaeigenda á Suðurlandi.

Fundurinn verður nk. miðvikudag, 25. september.

Fundarstaður er Heimabistro í Þorlákshöfn og hefst fundurinn kl. 17.00.

Félagar eru hvattir til að fjölmenna á fundinn.

Dagskrá:  Venjuleguleg aðalfundarstörf og önnur mál.

Kvöldverður í boði félagsins að loknum fundi.

Formaður Árborgar er Eggert Unnsteinsson