LS hefur tekið saman og greint helstu fyrirspurnir um fyrirkomulag og umsókn vegna starndveiða. Hér á eftir eru svör við því helsta sem brennur á strandveiðisjómönnum. Athugið upptalningi ekki tæmandi.
- Umsókn um leyfi til strandveiða skulu berast Fiskistofu FYRIR 22. apríl.
- Í umsókn skal tilgreina upphafsdag strandveiða.
- Fyrsti dagur strandveiða er mánudagurinn 5. maí
- Strandveiðileyfi veitir leyfi til veiða í 12 daga innan hvers mánaðar [maí – ágúst].
- Fiskistofa afgreiðir strandveiðileyfi þegar öll skilyrði eru uppfyllt. Haffæriskírteini, eignarhald skipstjóra og annað sem krafist er.
- Skipstjóri báts sem er í eigu lögaðila (ehf.) skal eiga meira en 50% í félaginu.
- Eignarhald lögaðila miðast við skráningu raunverulegs eiganda í fyrirtækjaskrá Ríkisskattstjóra.
- Eignarhald báts ræðst af skráningu í skipaskrá Samgöngustofu.
- Ónýttir dagar færast ekki milli mánaða
- Heimilt er stunda veiðar 4 daga í viku mánudag, þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag
- Óheimilt er að stunda veiðar uppstigningardag 29. maí, annan í hvítasunnu 9. júní, 17. júní og á frídegi verslunarmanna 4. ágúst
- Eigandi báts skal vera skráður eigandi í skipaskrá Samgöngustofu
- Eigandi skal vera lögskráður
- Óheimilt er að gefa út strandveiðileyfi á bát ef aflamark í þorskígildum talið er minna en það sem báturinn fékk úthlutað í upphafi fiskveiðiársins
- Skráning aflaupplýsinga sbr. reglugerð um stafræna skráningu og skil aflaupplýsinga.
Breytingar hjá einkahlutafélögum má senda inn rafrænt og er afgreiðslutími þeirra tilkynninga um 3-5 virkir dagar
Fiskistofa stefnir að því að opna fyrir umsóknir eftir hádegi á morgun, miðvikudaginn 9. apríl.