Að loknum 17. degi strandveiða, 3. júní, er þorskafli enn nokkru minni en í fyrra, munar þar 652 tonnum.

Fjöldi báta sem byrjaðir eru veiðar telja 738, en um eitt hundrað gætu bæst við strandveiðar þessa árs. Tafla sem hér fylgir sýnir hvernig bátarnir skiptast eftir svæðum. Mesta athygli vekur að á svæði A hefur bátum fækkað milli ára.

Hlutfallslega hefur sjóferðum á svæði A fækkað meira en nemur breytingum á fjölda báta. Fjöldi landana eru þrjúþúsund en það er um 18% færri en á sama tíma í fyrra.

Ótíð þessa vikuna hamlar veiðum og gerir veðurspá ráð fyrir að ekki rætist úr fyrr en í næstu viku. Hér sést hver þorskafli hvers dags hefur verið. Mestur hefur hann verið 397 tonn þann 21. maí. Þann dag var meðalaflinn 653 kg, en meðaltal frá upphafi er 623 kg, 9% lækkun milli ára.
