Þorskur og ufsi niður, en aukning í ýsu

Í dag kynnti Hafrannsóknastofnun tillögur sínar til stjórnvalda um heildarafla einstakra tegunda fyrir fiskveiðiárið sem hefst 1. september nk.

Ráðlagt er að draga úr veiðum á þorski um 4,4% og gert ráð fyrir áframhaldandi skerðingu næstu tvö til þrjú fiskveiðiárin. Þrír árgangar 4ra ára, 5 og 6 ára fiskur hefur ekki vaxið sem skildi og það talið tengjast slöku ástandi loðnustofnsins.

Stofnunin ráðleggur 2,8% aukningu ýsu og er stærð viðmiðunarstofnsins metin við sitt hæsta gildi eins og segir í kynningu Hafró. Því er spáð að ýsan haldist há næsta árið.

Hafrannsóknastofnun ráðleggur 10,8% skerðingu í ufsa.

Í raun skilja menn lítið í þeirri ráðgjöf þar sem ekki hefur tekist að veiða útgefnar heimildir á undanförnum árum. Á yfirstandandi fiskveiðiári hafa veiðst 27 þúsund tonn en leyfilegur afli er 66 þúsund tonn.

LS hefur tekið saman tölur úr ráðgjöfinni sem birtast hér í meðfylgjandi töflu.