Almanak LS 2026

Félagsmönnum hefur verið sent almanak LS 2026. Það berst með Póstinum í dag og næstu daga.  

Auk almennra upplýsinga sem tilheyra almanaki eru skilaboð stílaðar til smábátaeigenda. Árdegisflóð, stofndagar svæðisfélaga LS, dagsetningar aðalfunda þeirra, ásamt fleiru.

Hönnuður dagatalsins er og hefur verið frá upphafi Bjarki Guðmundsson. Ljósmyndari er Erlendur Guðmundsson.  Þeim er hér með þakkað fyrir vel unnin störf.  

Almanakið hefur verið gefið út frá árinu 2003 og er því 2026 það 24. í röðinni.

Að vanda prýða almanakið uppskriftir af girnilegum fiskréttum fyrir hvern mánuð sem Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra og smábátaeigendur deila.   

Fyrsta uppskrift ársins er lúða með pestó „Sá heppni“ sem Grímur Aspar Birgisson, Reykjavík – Svanur HF20, býður upp á.