Uppúr sauð á Alþingi í gær, 29. jánúar, í umræðum undir liðnum „fundarstörf forseta“ þar sem stjórnarandstaðan krafðist þess að grásleppufrumvarpið yrði tekið af dagskrá. Mikið var um framíköll úr þingsal og átti Lilja Rafney Magnúsdóttir í stökustu vandræðum með að flytja mál sitt vegna hegðunar sem ekki á að líðast á Alþingi.
Sá einstaki atburður átti sér stað að forseti alþingis áminnti Jón Gunnarsson, þingmann stjórnarandstöðunnar, að ef hann hætti ekki framíköllum yrði honum vísað úr þingsal.
Umræðurnar í heild sinni má sjá hér, grásleppuumræðan byrjar kl. 18.31













