Upplýsingar um grásleppuleyfi, aflahlutdeild og veiðiskyldu

LS hefur borist fjölmörg símtöl á undanförnum dögum með eftirfarandi fyrirspurn: Ef bátur með grásleppuhlutdeild leigir frá sér allan kvóta þetta fiskveiðiár og missir þar með hlutdeildina sína sökum veiðiskyldu, hver yrði hans staða gagnvart því að fá grásleppuleyfi 1. september?

Atvinnuvegaráðuneytið hefur nú staðfest „að réttur til grásleppuveiðileyfis byggist á sögulegum rétti viðkomandi báts, en ekki á núverandi stöðu í kvótakerfi eða eignarhaldi aflahlutdeilda.” Reglur um hlutdeildir og veiðiskyldu hafa því ekki áhrif á rétt til grásleppuleyfis 1. september.