Birt hefur verið í Stjórnartíðindum reglugerð um úthlutun aflamarks í gásleppu til nýliða.
Þar er nýliði skilgreindur „sá aðili sem á skip, sem ekki hefur skráða aflahlutdeild og hefur ekki fengið úthlutað aflahlutdeild eða átti rétt á aflahlutdeild í grásleppu vegna fiskveiðiársins 2025/2026.“
Umsókn skal skila á því formi sem Fiskistofa ákveður. Í umsókn um aflamark í grásleppu til nýliða skulu eftirfarandi upplýsingar koma fram:
Á hvaða staðbundna veiðisvæði fiskiskip muni stunda veiðar, sbr. 5. gr.
Nafn, kennitala og lögheimili umsækjanda.
Fiskiskip sem óskað er að aflamark verði skráð á.
Til úthlutunar eru 155 tonn og skiptast jafnt milli umsækjenda.
Ráðlagður heildarafli á grásleppu er 2.932 tonn. Sjá nánar













