Slow Food á Íslandi styður strandveiðar

Slow Food eru alþjóðleg samtök sem starfa að því að efla sjálfbær og réttlát matvælakerfi undir leiðarljósinu góður, hreinn og sanngjarn matur fyrir alla. Samtökin sendu á dögunum inn umsögn um drög að reglugerð um strandveiðar.

Skemmst er frá því að segja að strandveiðar fengu glimmrandi einkunn frá Slow Food á Íslandi, á grundvelli 1) áhrifa á lífríki, 2) byggðafestu og 3) gæði og verðmætasköpunar.

“Slow Food á Íslandi hvetur stjórnvöld til að nýta tækifærið sem endurskoðun reglugerðar um strandveiðar felur í sér til að styrkja vistvænar veiðar, staðbundna verðmætasköpun og réttlátari þátttöku í fiskveiðum. Með því að horfa skýrari hætti til veiðiaðferða, umhverfisáhrifa og samfélagslegs hlutverks strandveiða má skapa regluverk sem styður bæði við náttúru, byggðir og íslenska matarmenningu til framtíðar.”

Umsögnina í heild sinni má nálgast hér.