Síðasti dagur strandveiða í maí var fimmtudagurinn 28. Alls voru 14 dagar í boði til að ná þeim 12 dögum. Þrátt fyrir það og leiðinda veður voru 81 sem náðu 12 róðrum og 92 voru með 11 landanir. Meðaltal var 8,1 dagur hjá þeim 724 sem byrjaðir eru á strandveiðum þetta árið.
Maí skilaði rúmum 3.700 tonnum af þorski, og var meðaltalið rúm fimm tonn á bát. Samsvarandi á síðasta ári var það hundrað tonnum meira, en 750 tonn vantaði uppá að það sem fiskaðist fyrstu 14 daga í maí 2024.

Töflur sem hér fylgja eru miðaðar við 14 daga í maí hvers árs. Þar sést m.a. að þorskafli nú er rúmum hundrað tonnum meiri en á síðasta ári. Afli á dag minnkar á svæði A um 4,8% en eykst á öðrum svæðum, mest á svæði C um rúm tíu prósent.



Tölur eru unnar upp úr gögnum Fiskistofu













