Þegar liðnir eru 20 strandveiðidagar stendur þorskaflinn í 5.465 tonnum. Það er fimmtungi meira en á sama tíma í fyrra, jafngildir 912 tonnum. Hver dagur hefur þannig skilað 273 tonnum.

Afli eykst á öllum svæðum, mest á svæði B þar sem meðaltalið á bát er komið yfir átta tonn eða tæpu þriðjungi umfram það sem fyrstu 20 dagarnir skiluðu á síðasta ári.
Þorskafli

Nú eru 748 bátar búnir að landa afla, en það er svipaður fjöldi og í fyrra. Bátum hefur fjölgað á svæði A, en fækkað á öðrum svæðum.

Þorskafli í hverjum róðri er mestur á svæði B 690 kg. Aukning milli ára er á svæðum B, C og D en á svæði A skilar hver löndun nú minni afla en í fyrra.

Tölur eru unnar upp úr gögnum Fiskistofu













