Gunnlaugur Finnbogason nýr formaður Eldingar

Aðalfundur Eldingar var haldinn á Ísafirði sunnudaginn 25. september sl. Formaður félagsins Hálfdán Kristjánsson Flateyri, setti fundinn og bauð gesti velkomna. Hann tilkynnti fundarmönnum að hann mundi ekki gefa kost á sér til endurkjörs og því yrði að kjósa nýjan formann. Í kosningum til stjórnar var stungið upp á Gunnlaugi Finnbogasyni Ísafirði og hlaut hann rússneska kosningu. Með Gunnlaugi í stjórn verða eftirtaldir:
Reimar Vilmundarson, gjaldkeri
Hálfdán Kristjánsson
Páll Björnsson
Guðmundur Karvel Pálsson
Barði Ingibjartsson.
Starfsmaður stjórnar verður Guðmundur Halldórsson.
Fulltrúi Eldingar í stjórn LS verður Kristján Andri Guðjónsson
Gunnlaugur-finnboga_.jpgMyndin er af Gunnlaugi Finnbogasyni formanni Eldingar