Nýtt öryggistæki gegn strandi og árekstrum skipa

Strandvari er nýtt íslenskt öryggistæki sem þróað hefur verið í þeim tilgangi að vara við hættu á strandi og árekstri við önnur skip. Samkvæmt þeim sem staðið hafa að þróun og hönnun Strandvarans er um að ræða íslenska nýsköpun í sjóöryggi sem byggist á samstarfi við sjómenn, rannsóknaraðila og tækniþróunarfólk með það fyrir augum að stuðla að auknu öryggi og fækka slysum á sjó. Samkvæmt Rannsóknarnefnd sjóslysa hafa átt sér yfir 90 strandanir við landið frá árinu 2000, sem rekja má til svefns eða vanrækslu í brúnni, í flestum tilvikum var öryggisbúnaður ekki rétt stilltur eða slökkt hafði verið á honum vegna falskra viðvarana.
Hér er um að ræða tæki sem ávallt er virkt og er hannað til þess að gefa aðeins frá sér viðvörun þegar raunveruleg hætta steðjar að, meðal annars með því að þekkja hafnir og eðlilega aðkomu að þeim. Tækið styðst við nákvæmar upplýsingar um sker, grynningar og siglingaleiðir ásamt því að nota hreyfiskynjara og greiningaraðferðir til að meta hættuástand. Einnig sækir tækið sjálfkrafa uppfærslur um stöðu og færslu á sjókvíum sem hluta af árekstrarvörninni, ásamt því að vakta hreyfingu í brúnni (vökustaur), en að auki fylgir gátlisti fyrir sjóferðir og vatnsheldur minniskubbur sem skráir atburðarás ef hætta kemur upp.
Þróun Strandvara hófst árið 2013 með stuðningi frá Siglingastofnun, það var svo árið 2017 sem prófanir hófust og stóðu yfir í um fjögur og hálft ár áður sala hófst árið 2022.













