
Í gærmorgun tókum við á móti góðum gestum frá Fiskernes Agnforsyning í Noregi til þess að ræða beitu en eins og við vitum þá er beita ekki bara beita. Bryndís tók á móti gestunum með kaffi og vínarbrauði en fundurinn var svo í raun fjarfundur þar sem stjórn LS er eins og þekkt er, dreifð um allar koppagrundir.
Við þökkum fyrir heimsóknina sem var góð áminning um að beitumál eru ekki einkamál hverrar útgerðar fyrir sig, heldur mál þar sem LS bæði vill og getur lagt lóð á vogarskálarnar. Hvort heldur sem er með því að miðla þekkingu, liðka fyrir aukinni samkeppni eða skoða möguleika á nýjum lausnum. Fyrst og fremst er það auðvitað von okkar að hér á landi verði heilbrigð samkeppni á beitumarkaðnum með tilheyrandi áhrifum á verð, okkar félagsmönnum til hagsbóta.













