Viking í Hafnarfirði hvetur smábátaeigendur til að koma tímanlega með björgunarbáta, slökkvitæki og flotgalla í skoðun og býður félagsmönnum Landssambands smábátaeigenda 10% afslátt af skoðun fyrir áramót.
Álagið á skoðanir er að öllu jöfnu mikið eftir áramót. Fyrirtækið óskar því eftir samstarfi við smábátaeigendur um að dreifa skoðunum betur yfir árið með því að koma fyrr með búnaðinn í skoðun.
Með því móti má draga úr álagi þegar nær dregur vertíð og tryggja betri og skilvirkari þjónustu fyrir eigendur smábáta.
Til að koma til móts við þá sem bregðast tímanlega við býður Viking 10% afslátt af skoðun björgunarbáta, slökkvitækja og flotgalla, að því gefnu að búnaðurinn sé bæði kominn í skoðun og sóttur fyrir áramót. Félagsmenn LS eru hvattir til að nýta sér þetta tækifæri og hafa samband við Viking í Hafnarfirði vegna nánari upplýsinga og tímapantana.













