Aðalfundur Eldingar, 8. og 13. september

Elding, félag smábátaeigenda í Ísafjarðarsýslu, boðar til aðalfundar í september. Fundarhöld verða með óvenjulegu sniði þetta árið og verða í tvennu lagi: aukafundur þriðjudaginn 8. september kl.10.00 og aðalfundur sunnudaginn 13. september kl.13.00. Báðir fundir verða haldnir í Guðmundarbúð á Ísafirði (Sindragata 6).

——————————————–

Þann 8. sept koma formaður Landsamband smábátaeigenda Kjartan Páll og nýráðinn framkvæmdastjóri Bryndís Ósk. Munu þau fara yfir stöðu mála og starfsemi LS á árinu. Í kjölfarið hefst undirbúningur fyrir aðalfund og landsfund, auk annarra mála.

Fundur hefst kl 10.00

——————————————–

Þann 13. sept verður lokið venjulegum aðalfundarstörfum:

  • Kosning Stjórnar 
  • Tillögur samþykktar til Landsfundar 
  • Önnur mál

Fundur hefst kl 13.00

Kveðja,

Benedikt Bjarnason, formaður Eldingar