Aðalfundur Hrollaugs verður haldinn föstudaginn 11. sept. 2026 kl. 12.00 í Heppu Restaurant, Höfn í Hornafirði.
Kjartan Páll Sveinsson, formaður LS, og Bryndís Ósk Björnsdóttir, nýráðinn framkvæmdastjóri, munu fara yfir stöðu mála og starfsemi LS á árinu. Í kjölfarið hefst undirbúningur fyrir aðalfund og landsfund.
Önnur mál á dagskrá eru skýrsla stjórnar, ársreikningur, kosning stjórnar og skoðunarmanna og umræður og ályktanir.
Við hvetjum félagsmenn til að fjölmenna til fundar og viðra skoðanir sínar til þess sem hæst ber í málefnum smábátaeigenda.
Sævar Knútur Hannesson, formaður Hrollaugs













