LS hefur borist eftirfarandi beiðni:
Kæri viðtakandi
Í tengslum við doktorsverkefni óskum við eftir aðstoð þinni að svara 10 mínútna könnun, sem leggur mat á hvernig villt sjávarspendýr (selir, höfrungar og hvalir) hafa áhrif á dagleg störf sjómanna. Okkur langar að vita hversu oft þú verður var/vör við þessi dýr í vinnunni þinni, hvort þau valdi skemmdum á afla eða veiðarfærum, og hvernig meðafli sjávarspendýra hefur áhrif á vinnu þína og öryggi um borð.
Þessi könnun er nafnlaus og óskar eftir þinni persónulegu reynslu. Við viljum gjarnan fá sem flest svör, óháð því hvort aðrir áhafnameðlimir eða einstaklingar frá sama fyrirtæki hafi þegar svarað.
Spurningarlistinn verður virkur til 1. nóvember 2026. Að könnun lokinni verður samantekt gagna gerð aðgengileg í skýrslu sem þú getur kynnt þér.
Könnunina má nálgast á vefslóðinni https://form.jotform.com/261244091644353 eða í gegnum QR kóðanum hér að neðan.

Við værum afar þakklát fyrir framlag þitt í þessu máli. Ef þú hefur einhverjar spurningar varðandi könnunina eða aðrar athugasemdir, vinsamlegast hafðu samband við melanie.stock@hafogvatn.is.













