LS skilaði í seinustu viku umsögn um fyrirhugaðar breytingar á lögum um stjórn fiskveiða. LS styður markmið um aukið gagnsæi, ábyrga nýtingu sjávarauðlindarinnar og aukið öryggi sjófarenda en leggur áherslu á að breytingarnar verði markvissar og taki mið af sérstöðu smábátaútgerða.
Í umsögninni er kallað eftir því að komið verði í veg fyrir kerfisbundna nýtingu VS-afla í viðskiptalegum tilgangi, að fullt gagnsæi ríki um ráðstöfun fjármuna Verkefnasjóðs sjávarútvegsins og að stjórnvöld efli innlenda fiskvinnslu með hvötum fremur en íþyngjandi takmörkunum. Þá vill LS að réttur til flutnings aflamarks milli ára fylgi hinu leigða aflamarki og að ufsaveiðar dagróðrarbáta á króka og í net verði undanþegnar aflamarki. Samtökin benda á að rúm 46% ufsaheimilda hafi verið óveidd á sex ára tímabili.
LS krefst þess jafnframt að áhrif breytinganna á smábátaútgerðir, leigumarkað aflaheimilda og sjávarbyggðir verði metin sérstaklega og að raunverulegt samráð fari fram áður en frumvarp verður lagt fram.













