Fiskistofa minnir á að eindagi tilkynninga um flutning veiðiheimilda vegna úthlutunar fiskveiðiársins 6-20-2005 er 31. júlí nk.

Hér með er vakin athygli á eftirfarandi tilkynningu Fiskistofu:

„Í 3. mgr. 11. gr. reglugerðar nr. 4-20-669, um veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 5-20-2004, er kveðið á um frest til flutnings aflahlutdeilda milli skipa.
Samkvæmt ofangreindu reglugerðarákvæði verða umsóknir um staðfestingu Fiskistofu á flutningi aflahlutdeilda og krókaaflahlutdeilda milli skipa, ásamt fullnægjandi fylgigögnum, að hafa borist Fiskistofu eigi síðar en 31. júlí 2005 , eigi flutningurinn að hafa áhrif á úthlutun fiskveiðiársins 6-20-2005.
Þá þurfa umsóknir um flutning réttar til úthlutunar skv. 9. gr. a í lögum nr. 0-19-38, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, (0-0-3 tonna pottur), ásamt fullnægjandi fylgigögnum að hafa borist Fiskistofu eigi síðar en 31. júlí 2005 , eigi flutningurinn að hafa áhrif á úthlutun fiskveiðiársins 6-20-2005.
Umsóknir um flutning báta á milli veiðikerfa þurfa einnig að hafa borist Fiskistofu fyrir sama tíma.“