Rætt um þorskinn á Alþingi

Í dag kl. 13:30 verður sjávarútvegsráðherra til andsvara í umræðu utan dagskrá á Alþingi um ástand íslenska þorskstofnsins og veiðihorfur. Málshefjandi er Magnús Þór Hafsteinsson (F) og mun umræðan standa í hálfa klukkustund.
Athygli er vakin á að hægt er að fylgjast með umræðunum í sjónvarpi.