Sjávarútvegsráðherra skipar ráðgjafanefnd fyrir Hafró

Sjávarútvegsráðherra skipaði í dag Ólaf Jens Daðason skipstjóra á Hrólfi Einarssyni í ráðgjafarnefnd Hafró. Í fréttatilkynningu sem ráðuneytið sendi frá sér segir að nefndin verði „stjórn Hafrannsóknastofnunarinnar og forstjóra hennar til ráðuneytis jafnframt því að vera tengiliður stofnunarinnar við sjávarútveginn og við innlenda og erlenda fagaðila.

Meginverkefni nefndarinnar er að fjalla um helstu þætti í starfsemi Hafrannsóknastofnunarinnar og fyrirhugaðar áherslur. Er þar einkum átt við rannsóknaverkefni stofnunarinnar og skipulagningu og áform í rannsóknum á vegum hennar.

Nefndin getur gert tillögur til forstjóra og stjórnar Hafrannsóknastofnunarinnar um þau mál sem hún fjallar um. Ráðgjafarnefndin kýs sér formann sem hefur rétt til setu á fundum stjórnar Hafrannsóknastofnunarinnar með málfrelsi og tillögurétti. Nefndinni er gert koma saman a.m.k. einu sinni á ári en oftar ef ástæða er til.“

Með Ólafi í nefndinni eru eftirtalin:

Árni Bjarnason, skipstjóri
Åsmund Bjordal, forskningsdirektör, veiðarfærafr./fiskifræði Havforkningsinstituttet, Bergen
Benedikt Jóhannesson, stærðfræðingur og framkvæmdastjóri
Elínbjörg Magnúsdóttir, fiskvinnslumaður
Kristján Þórarinsson, stofnvistfræðingur
Michael Sinclair, sjávarlíffræði/fiskifræði, Science Regional Director Bedford Institute of Oceanography, Dartmouth
Sigrún Jónasdóttir, sjávarlíffræðingur, Danmarks Fiskeriundersøgelse, Kaupmannahöfn
Sigurður Snorrason, líffræðingur, dósent HÍ, forstm. Líffræðistofnunar HÍ