Stórlúða í net

Haraldur Ólafsson skipstjóri á Þyt EA 96 frá Árskógssandi stendur hér við hliðina á stórlúðu sem hann fékk nú í vikunni. Lúðan kom í net sem Haraldur hafði lagt undan Hvanndalabjörgum. Eins og sjá má er lúðan engin smásmíði, hún vóg 217 kg upp úr sjó. Lúðan var seld á fiskmarkaði Dalvíkur fyrir 395 kr/kg. luda.jpg