Minna af þorski í Húnaflóa

Að sögn Sævars Benediktssonar á Hólmavík, eiganda Bensa Egils ST, er mun minna af þorski í flóanum heldur en verið hefur undanfarin ár. Hann sagðist merkja þetta á að lítið kæmi af þorski í grásleppunetin, en aftur á móti virðist nóg af ýsu. Þorskurinn er grindhoraður og ekkert inni í honum nema þorskur og einnig hefur hann séð ýsu í einstökum fiski.
Sævar er harðorður út í Hafrannsóknastofnun, ekkert vit sé í að leyfa frjálsar loðnuveiðar ár eftir ár. Það sé nú að koma niður á lífríki sjávar, norðurstofninn sé hruninn og fátítt sé að loðnuangan finnist á miðum þeirra Strandamanna.Þorskurinn hefur ekkert annað en sjálfan sig að éta og fuglinn verpir ekki þar sem hann hefur ekkert æti.
Þá bætti Sævar því við að forsenda þess að hægt verði að auka þorskkvótann um 30 þús. tonn á komandi fiskveiðiári sé að loðunuveiðar verði stöðvaðar.

  • Ráðstefna felld niður vegna verkfalla
  • Sjómannadagurinn á Suðureyri og Patreksfirði – metnaðarfull dagskrá
  • Grásleppuvertíðin hafin á Nýfundnalandi
  • Vertíðarlok í Noregi, 30% samdráttur milli ára
  • Minna af þorski í Húnaflóa
  • Ágætis afli hjá handfærabátum frá Tálknafirði.
  • Línuívilnun í stefnuyfirlýsingunni
  • Línuívilnun gagnrýnd af stórútgerðinni
  • Útflutningsverð á ýsu lækkar um 23%
  • GREINAR – Nýr hnappur á smabatar.is
  • Lélegt á handfærin í Breiðafirði
  • Snæfell mótmælir rækjuveiðum í innanverðum Breiðafirði
  • Frá framkvstj. – grein í Fiskifréttum
  • Útflutningsverð á kavíar hækkar
  • Ýsuafli krókaaflamarksbáta
  • Mun minni veiði í Noregi
  • Grásleppuveiðin
  • Grásleppuveiðimenn í Stykkishólmi álykta
  • Frá frkvstj. – Grein í Morgunblaðinu
  • 2,5 metra þorskur!
  • Nýfundnaland