Svæðisfélög LS eru óðum að klára aðalfundi
sína. Fundirnir hafa gengið vel,
mikill baráttuandi í trillukörlum og þeir staðráðnir í að vinna saman að bættu
og öruggara starfsumhverfi.
Eftirfarandi aðalfundir hafa verið settir á
dagskrá:
Sæljón
Aðalfundur Sæljóns – félags smábátaeigenda á
Akranesi – verður haldinn í Jónsbúð föstudaginn 8. október. Fundurinn hefst kl 20:00.
Krókur
Aðalfundur Króks verður haldinn í Þorpinu á
Patreksfirði nk sunnudag 10. október.
Fundurinn hefst kl 13:00.
Strandir
Aðalfundur Stranda verður haldinn í Slysavarnafélagshúsinu
á Hólmavík nk. sunnudag 10. október.
Fundurinn hefst kl 20:00.
Formaður LS og framkvæmdastjóri munu mæta á
alla fundina.
Félagsmenn Sæljóns, Króks og Stranda eru
hvattir til að fjölmenna á fundina og hafa þannig áhrif á það sem samþykkt
verður að beina til 26. aðalfundar LS.