Tími aðalfunda er runninn upp. Á næstu dögum verða haldnir aðalfundir
í fjórum svæðifélögum LS.
Skalli – félag smábátaeigenda Hvammstangi –
Siglufjörður
24. september verður aðalfundur Skalla. Fundurinn verður að venju haldinn á
Sauðárkróki og hefst kl 14:00.
Formaður Skalla er Sverrir Sveinsson Siglufirði.
Báran – félag smábátaeigenda í Hafnarfirði og
Garðabæ
25. september blæs Báran til aðalfundar. Fundurinn hefst kl 10:00 í
Kænunni. Formaður Bárunnar er Jón
Breiðfjörð Höskuldsson.
Snæfell – félag smábátaeigenda á Snæfellsnesi
26. september verður aðalfundur Snæfells. Hann verður haldinn á Hótel Framnesi
Grundarfirði og hefst kl. 17:00.
Formaður Snæfells er Alexander Kristinsson Rifi.
Hrollaugur – félag smábátaeigenda á Hornafirði
27. september funda Hornfirðingar. Aðalfundur Hrollaugs verður í Nýheimum
og hefst kl 20:00. Formaður
Hrollaugs er Arnar Þór Ragnarsson.
Formaður LS og framkvæmdastjóri munu mæta á
alla fundina.
Félagsmenn Skalla, Bárunnar, Snæfells og
Hrollaugs eru hvattir til að fjölmenna á fundina og hafa þannig áhrif á það sem
samþykkt verður að beina til 26. aðalfundar LS.
Aðalfundur LS verður í Turninum í Kópavogi 14.
og 15. október.