Tvö svæðisfélög LS funda nk. laugardag, 11. október.
Strandir halda sinn aðalfund í Malarkaffi á Drangsnesi. Fundurinn hefst kl 11.
Boðið verður upp á fiskisúpu í fundarhléi. Að sögn
staðarhaldara fékk uppskriftin
eldskírn sína í sumar og hlaut einróma lof gesta.
Formaður Stranda er Haraldur Ingólfsson
———————————————–
Aðalfundur Eldingar verður á Hótel Ísafirði. Fundurinn hefst kl 16:00.
Boðið verður upp á kvöldverð í fundarhléi.
Formaður Eldingar er Gunnlaugur Finnbogason
Örn Pálsson framkvæmdastjóri LS mætir á báða fundina.