Svæðisfélög Landssambands smábátaeigenda hafa nú flest boðað aðalfundi sína.
Hver fundurinn rekur annan og dagskráin næstu 7 daga sem hér segir:
Hrollaugur – á Höfn 27. september, kl 20:00
Aðalfundur Hrollaugs – félagas smábátaeigenda á Hornafirði – verður haldinn í kvöld 27. september. Fundurinn hefst kl 20:00 og verður að venju haldinn í Víkinni.
Formaður Hrollaugs er Gísli Geir Sigurjónsson.
Félag smábátaeigenda á Austurlandi – á Egilsstöðum 28. september, kl 14:00
Aðalfundur Félags smábátaeigenda á Austurlandi verður haldinn á morgun 28. september. Fundarstaður er Hótel Hérað Egilsstöðum. Fundurinn hefst kl 14:00.
Formaður Félags smábátaeigenda á Austurlandi er Ólafur Hallgrímsson, Borgarfirði.
Reykjanes – í Grindavík 29. september, kl 17:00
Aðalfundur Reykjaness – félags smábátaeigenda á Reykjanesi – verður í Salthúsinu Grindavík laugardaginn 29. september. Fundurinn hefst kl 17:00.
Formaður Reykjaness er Halldór Ármannsson, Keflavík.
Elding – á Ísafirði 30. september, kl 17:00
Aðalfundur Eldingar – félags smábátaeigenda í Ísafjarðarsýslum – verður haldinn nk. sunnudag, 30. september á Hótel Ísafirði. Fundurinn hefst kl 17:00.
Formaður Eldingar er Gunnlaugur Finnbogason, Ísafirði.
Krókur – á Tálknafirði 1. október, kl 20:00
Aðalfundur Strandveiðfélagsins Króks verður haldinn í Hópinu Tálknafirði mánudaginn 1. október. Fundurinn hefst kl 20:00.
Formaður Strandveiðfélagsins Króks er Tryggvi Ársælsson, Tálknafirði.
Strandir – á Drangsnesi 2. október, kl 20:00
Aðalfundur Stranda verður haldinn í Malarkaffi Drangsnesi þriðjudaginn 2. október. Fundur hefst kl 20:00.
Formaður Stranda er Haraldur Ingólfsson, Drangsnesi.
Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna á fundina, taka þátt í umræðum og hafa þannig áhrif á ályktanir sem samþykktar verða.